Sauðfé afurðaverð

Sauðfjárslátrun haustið 2024

Áætlað er að hefja sauðfjárslárun þriðjudaginn 10. september 2024 og ljúka slátrun 31. október.

Nú liggur fyrir verðskrá fyrir sauðfé. Dilkakjöt hækkar um 7% frá fyrra ári. Auk þess er hækkun á yfirborgunum í upphafi sláturtíðar en vægi þeirra til hækkunar milli ára er um 0,7% af meðalverði. Hækkun á viðbót á afurðaverð er auk þess 3% frá fyrra ári en hún verður alls 8% á sauðfjárinnlegg haustsins.

Verðskrá kindakjöts haust 2024 – útgefin 26. júní 2024

Töluverðar yfirborganir eru í upphafi sláturtíðar en til að mynda er nú 19% yfirborgun á dilka í fyrstu sláturviku og 10% yfirborgun á fullorðið fyrstu tvær sláturvikurnar, sjá nánar í verðskrá.

Viðbót á afurðaverð : Greidd verður 8% viðbót á allt sauðfjárinnlegg ofan á verðskrá vikulega við útgáfu innleggsreikninga.

Greiðslutími: Innlegg staðgreitt föstudag eftir innleggsviku.

Sláturpantanir og nánari upplýsingar í síma 480 4100 og á slatrun@ss.is

Heimtaka: Í boði er að leggja inn slög og hálsa af heimteknum dilkum til greiðslu á hluta af heimtökukostnaði. Til einföldunar verður annað hvort að leggja alla hálsa og slög af heimteknum dilkum inn í hvert skipti sem lagt er inn eða ekkert. Ef allir hálsar og slög eru innlögð lækkar heimtökugjald sbr. neðangreint. Merkja verður á heimtökublað ef bóndi vill leggja slög og háls inn á móti hluta heimtökugjalds.

Heimtökublað

Vinsamlega athugið að ekki er hægt að taka heim skrokka eftir númerum. Ef bændur vilja taka valda gripi heim þarf að merkja þá á haus fyrir flutning í sláturhús.

Gjald í haust fyrir heimtöku og 7 parta sögun er þrískipt. Fyrir magn sem er 15 stk eða minna á innleggjanda er gjaldið 5.250 kr/stk en á það magn sem er frá 16 – 80 stk er gjaldið 6.760 kr/stk. Ef slög og hálsar eru lögð inn verður þetta gjald annars vegar 4.550 kr/stk og hins vegar 6.060 kr/stk á magn 15 – 80 stk.  Heimtaka á fullorðnu fé kostar 5.700 kr/stk. fyrir allt að 15 stk en 7.400 kr/stk á magn 15-80 stk.  Fyrir magn umfram 80 stk. reiknast verktakagjald sem fer eftir fjölda og þyngd.  Fínsögun kostar aukalega 1.110 kr/stk.

Vinsamlega athugið að fullorðnir hrútar verða aðeins teknir til slátrunar þá daga sem sláturtími er laus. Heimtökugjald á hrútum er 7.200 kr/stk.  Ef þeir eru ekki teknir heim þá reiknast urðunargjald 8.100 kr/stk.

Veturgamlir hrútar falla í hrútaflokk eftir 10. október og eru ekki heldur teknir til innleggs en heimtaka á báðum er sjálfsögð.

Vinsamlega athugið einnig að ef leggja á inn sauði (veturgamla og eldri) þá verður að fylgja þeim vottorð frá dýralækni um geldingu sem verður að fara fram a.m.k. tveimur mánuðum fyrir slátrun.

Sjá nánar yfirlit um heimtöku í eftirfarandi töflu:

HeimtökugjaldFjöldi
Valkostur0 – 1516 – 8081+
Dilkar, 7 parta sögun5.250 kr/stk6.780 kr/stkVerktökugjald
Dilkar, 7 parta sögun með slög/háls innlögð4.550 kr/stk6.060 kr/stk
Fullorðið5.700 kr/stk7.400 kr/stkVerktökugjald
Hrútar7.200 kr/stk7.200 kr/stk
Fínsögun, aukalega1.110 kr/stk1.110 kr/stk

Afhending á Selfossi, Hvolsvelli og á Fosshálsi er án kostnaðar. Kostnaður af heimsendingum innan félagssvæðis SS er 120 kr/kg. Sent verður með Flytjanda. Hvorki gærur né slátur fylgir heimteknu kjöti.

Virðisaukaskattur bætist við framangreindar fjárhæðir.

Bændum stendur til boða að kaupa frosið dilkakjöt með afslætti í sláturtíð en ekki er um að ræða heimtöku á innleggi viðkomandi bónda.