Sláturfélag Suðurlands svf. – Fyrirhuguð breyting á yfirstjórn
Hjalti H. Hjaltason fjármálstjóri SS hefur óskað eftir að ljúka störfum hjá félaginu. Hjalti H. Hjaltason hóf störf hjá SS 1. apríl 1985, fyrst sem aðalbókari og síðar deildarstjóri hagdeildar. Hann hefur verið fjármálastjóri félagsins frá árinu 1987.
Hafin er leit að nýjum fjármálastjóra. Hjalti H. Hjaltason mun vera eftirmanni sínum til aðstoðar eins og þarf þegar hann kemur til starfa.
Reykjavík, 5. febrúar 2025.
Sláturfélag Suðurlands svf.
Steinþór Skúlason, forstjóri – sími: 575 6000 – steinthor@ss.is