SS – barkinn 2009 var haldinn á Hvolsvelli í september. Þar kom starfsfólk kjötvinnslunnar saman ásamt nokkrum úr söludeildinni og gerði sér glaðan dag í lok sumars.
Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Borðhald þar sem kjötiðnaðarmeistarar okkar buðu upp á dýrindis steikur og meðlæti í föstu og fljótandi formi og því næst hinn geysivinsæla söngvakeppni SS-barkinn. Að lokum sá diskótekið Dúndur um að halda uppi stuði.

Keppnin um SS-barkann var geysilega hörð, enda eftir miklu að slægjast. Svo fór að lokum að Guðmann Óskar Magnússon, rafvirki á vélaverkstæðinu hreppti sigurinn eftir harða keppni. Í öðru sæti varð Rúnar Smári Rúnarsson í Pökkun A og þær síkátu Mið-Merkursystur, María, Hulda og Sigga í því þriðja.
Á myndinni taka hinar síkátu systur lagið.