Til að mæta þörfum bænda um upplýsingar í því skyni að hver og einn geti metið hagkvæmasta sláturtíma fyrir sig þá mun SS birta upplýsingar um þróun flokkunar og meðalverð meðan á sauðfjársláturtíð stendur. Ákvarðanir bænda sem byggja á réttum upplýsingum hjálpa svo félaginu að móta hvernig verðlagning á að breytast eftir vikum til að stuðla að jafnri ásókn í slátrun og lágmörkun sláturkostnaðar sem skilar sér til bænda í hærra afurðaverði.

Eftirfarandi tafla verður uppfærð vikulega. Sjá má að fyrstu slátranir skila háu meðalverði sem er nánast hið sama fyrstu tvær vikurnar. Stígandi er í holdfyllingu en fitan sveiflast aðeins. Eftir breytingu á verðhlutföllum skv. tillögu LS vegur holdfylling meira en fita í verði nema fita fari yfir 3. Meðalverð pr. kg lækkar eftir viku 35 en meðalverð pr. dilk hækkar vegna aukinnar meðalþyngdar.

Sauðfé: Flokkun og meðalverð í viku 34 – 37 í pdf skjali.  
 
mat_og_medalverd_til_viku_37