Nýtt vöruhús tekið í notkun í Þorlákshöfn – Opið hús kl. 16:00 – 19:00 þann 3. nóvember 2016 að Hafnarskeiði 12 í Þorlákshöfn í nýju vöruhúsi félagsins.
– Kynning á starfsemi SS í Þorlákshöfn.
– Samtals 3.500 fermetra vöruhús.
– Nýtt vöruhús tryggir enn betur vörugæði Yara áburðar frá verksmiðju til bónda.
SS er með opið hús á athafnasvæði félagsins að Hafnarskeiði 12 Þorlákshöfn fimmtudaginn 3. nóvember n.k. Kynning á starfsemi félagsins og vígsla á nýju 1.500 fermetra vöruhúsi hefst kl. 16:00.
Í tilefni dagsins verður boðið upp á kjötsúpu að hætti Sunnlenskra bænda og SS. Einnig höfum við fengið til liðs við okkur góða gesti. Landstólpi sem byggði vöruhúsin í Þorlákshöfn mun kynna það nýjasta í fjósbyggingum ásamt tækjabúnaði sem létta bændum störfin. Jötunn vélar mun einnig vera á staðnum og kynna vélar og tæki m.a. það nýjasta í áburðardreifingu.
Við bjóðum bændur velkomna í tilefni dagsins.
Mikil uppbygging SS á hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn.
Í febrúar 2007 keypti SS 511 fermetra vöruhús við höfnina í Þorlákshöfn að Hafnarskeiði 12 ásamt ásamt 5.557 fermetra lóð auk þess að gera samkomulag við Sveitarfélagið Ölfus um úthlutun á viðbótar lóð að Hafnarskeiði 10a við hlið lóðarinnar. Nýtt deiliskipulag var síðan samþykkt í febrúar 2013 þar sem lóðirnar voru sameinaðar. Athafnasvæðið er nú tæpir 9.500 fermetrar sem tryggir búvörudeild félagsins gott rými til vaxtar á komandi árum.
Undir lok árs 2013 hófust síðan framkvæmdir við 1. áfanga með byggingu á 1.500 fermetra vöruhúsi. Vöruhúsið var tekið í notkun haustið 2014 og hefur reynst í alla staði vel. Lokaáfangi uppbyggingar á vöruhúsum í Þorlákshöfn lauk síðan með byggingu á öðru 1.500 fermetra vöruhúsi í október 2016 en framkvæmdir hófust í ársbyrjun. Samtals eru því vöruhús SS í Þorlákshöfn rúmlega 3.500 fermetrar að stærð.
SS hefur átt mjög góða samvinnu við Landstólpa sem byggði bæði vöruhúsin. Húsin er afar vönduð í alla staði og framkvæmdir hafa gengið með afbrigðum vel. Landstólpi hefur mikla reynslu á þessu sviði enda hefur fyrirtækið byggt tugi húsa um allt land á undanförnum árum. Auk Landstólpa komu að verkinu fjöldi góðra verktaka á Suðurlandi. Verkfræðistofan Ferill sem SS hefur átt langt og farsælt samstarf við sá um hönnun, umsjón og eftirlit með byggingarframkvæmdum. Vöruhúsin voru eingöngu fjármögnuð úr rekstri SS enda fjárhags- og lausafjárstaða félagsins góð.
Framtíðarnýting í Þorlákshöfn.
Aðstaðan í Þorlákshöfn er SS mjög mikilvæg vegna uppbyggingar við sölu á Yara áburði. Árlega fara í gegnum aðstöðu félagsins í Þorlákshöfn um 10 þúsund tonn af áburði.
Með nýju vöruhúsi er lokið uppbyggingu félagsins í Þorlákshöfn. Nýtt vöruhús gefur möguleika til kaupa á áburði á þeim tíma sem innkaupsverð er hvað hagkvæmast en það og varðveisla á gæðum áburðarins frá verksmiðju til bónda eru veigamikil atriði til að tryggja bændum gæða áburð frá Yara með hagkvæmum hætti.
Búvörudeild SS á sér ekki langa sögu en á árinu 2001 hóf SS skipulegan innflutning á tilbúnum áburði fyrir bændur. SS er í afar farsælu samstarfi við norska stórfyrirtækið YARA um innflutning og sölu á áburði. SS skipar upp áburði á 10 höfnum um allt land. Umsvifin eru hins vegar mest í Þorlákshöfn. SS flytur einnig inn kjarnfóður í samstarfi við DLG í Danmörku en DLG er samvinnufélag bænda. Í dag rekur SS 3 fóðurbíla og mikil sóknarfæri framundan. Búvörudeildin selur einnig m.a. bætiefni, rúlluplast, sáðvörur og fatnað. Með nýja vöruhúsinu í Þorlákshöfn verður SS enn betur í stakk búið til að þjónusta bændur.
Frekari upplýsingar veita:
Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búvörudeildar í síma 575 6000 – elias@ss.is
Fréttatilkynning SS 24. okt 2016 – Nýtt vöruhús í Þorlákshöfn