Ný afurðaverðskrá svína og nautgripa hefur tekið gildi. Grís IA hækkar í 236 kr/kg og UN IA í 348 kr/kg svo dæmi sé tekið. Nánari upplýsingar er að finna í afurðaverðskrá tegundanna. Bændum er bent á að hafa samband við sláturhúsið á Selfossi vegna sláturpantana. Verðbreytingarnar eru í takt við aðstæður sem nú ríkja á kjötmarkaði fyrir svín og naut.