SS býður til bændafunda í samvinnu við DLG og YARA þar sem í boði eru fræðsluerindi um kjarnfóður og áburð. Allir velkomnir.
Fundirnir verða haldnir frá kl. 20:30 – 23:00
· Hótel Borgarnesi – fimmtudaginn 29. nóvember.
· Félagsheimilinu Hvoli – föstudaginn 30. nóvember.
DAGSKRÁ
· Steinþór Skúlason, forstjóri SS
Setur fundinn og ávarpar gesti.
· Jakob Kvistgaard, framleiðslustjóri kjarnfóðurs hjá DLG
Fóðrun mjólkurkúa og eldisgripa í Danmörku. Kjarnfóður frá dlg fyrir kýr og eldisgripi.
Aðstæður til landbúnaðarframleiðslu í Danmörku og á Íslandi. Hvað skilur á milli?
· Anders Rognlien, jarðræktarfræðingur hjá YARA
Verðmæti túna í nútíma landbúnaði. Niðurstöður nýrra tilrauna. Mikilvægi brennisteins við nýtingu húsdýraáburðar. Yara og verndun umhverfis.
Fundarstjóri verður Guðni Ágústsson.
Léttar veitingar og góðgæti frá framleiðsludeildum SS í umsjá kvenfélags Borgarness og kvenfélagsins Einingar á Hvolsvelli.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma mætir á fundina og fer yfir stöðu helstu þjóðmála eins og honum er einum lagið.
Fyrirlestrarnir verða þýddir eins og þurfa þykir auk þess sem glærur verða á íslensku.
Auglýsing fundanna á pdf formi.
Auglýsing fundanna á pdf formi.