Breyting á 1944 réttunum
Á
undanförnum mánuðum hafa staðið yfir breytingar á umbúðum 1944 réttanna, sem neytendur ættu nú þegar að hafa orðið varir við. Hluti réttanna er nú kominn í stærri og veglegri 3ja hólfa bakka í stað 1-2 hólfa áður. Skammtar hafa stækkað og bætt hefur verið við meðlæti. Jafnframt hefur útliti umbúða verið breytt.
Eftirfarandi réttir í 3ja hólfa bökkum eru nú komnir í sölu:
Hangikjöt Kjötbollur Fiskibollur Kálbögglar Kindabjúgu
![](https://www.ss.is/wp-content/uploads/images/vorur/1343388_1944-nyir.jpg)