Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn í félagsheimilinu
Þingborg, föstudaginn 8. apríl 2005 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
a) Tillaga um arð og vexti af stofnsjóði.
Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði 10% arður af B-deild stofnsjóðs, alls 20 milljónir og reiknaðir 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 12 milljónir.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 15. mars 2005.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.