Búið er að greiða kr. 30 viðbótina á innlegg janúar – ágúst. Viðbótin á sauðfjárinnlegg haustsins verður greidd 25. nóvember næstkomandi og viðbót á stórgripainnlegg september – desember verður greidd 20. janúar.
Þetta fréttabréf er öðru fremur helgað nýliðinni sauðfjársláturtíð. Sláturtíðin gekk mjög vel og góður gangur var á sláturlínu. Hvert stefnir kindakjötsframleiðslan? Kjötmat og sjónmat á fitu? Verðmæti matsflokka dilkakjöts. Sláturkostnaður og áhrif fallþunga. Sláturáætlun næsta hausts.
Það hefur verið í skoðun í nokkurn tíma að endurbyggja stórgripasláturhúsið á Selfossi og nokkrar tillögur verið settar fram um leiðir í þessu efni.
Enn ríkir óvissa um verðþróun og framboð á áburði fyrir komandi vertíð. Yara hefur tryggt SS það magn sem félagið þarf svo ekki á að þurfa að óttast skort.
Þrjár nýjar vörur hafa komið á markað nýlega. Nautaþynnur, forsteiktar raspaðar kótilettur á einungis 15-20 mínútum og óreykt beikon með ítölskum keim “Pancetta”.
Starfsfólkið á bak við SS. Sigríður Erla Bjarnadóttir hóf störf árið 1971 og hefur fengið gullmerki SS. Erla er einn af 350 starfsmönnum sem SS byggir á.
Fréttabréf SS 3. tbl. á pdf. formi.