Fagkeppni kjötiðnaðarmanna var haldinn í tengslum við sýninguna Matur 2002 í Kópavogi. Keppt var í sex vöruflokkum og sendu kjötiðnaðarmenn Sláturfélags Suðurlands vörur til þátttöku í öllum flokkum.
Fyrirkomulag keppninnar er þannig að menn senda inn vöru með nafnleynd til dómarahóps, sem dæmir vörurnar eftir faglegum gæðum hennar. Allar vörur byrja með fullt hús stiga eða 50 stig. Með þessu fyrirkomulagi geta margar vörur haft gull, silfur eða bronsverðlaun. Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49 til 50 stig og vera nánast gallalaus. Vörur með 46 til 48 stig og aðeins lítilsháttar galla fá silfurverðlaun og vörur með 42-45 stig fá bronsverðlaun. Vörur með minna en 42 stig fá ekki verðlaun.
Stoltir Kjötiðnaðarmenn með verðlaunagripina
Úrslit voru kynnt, laugardaginn, 20. apríl og náðu kjötiðnaðarmenn Sláturfélagsins glæsilegum árangri. Hrepptu þeir 7 gullverðlaun, 7 silfurverðlaun og 11 bronsverðlaun.
Auk þess hlaut Viktor Steingrímsson, sérstök verðlaun Landssambands kúabænda fyrir Nautarúllupylsu, athyglisverðustu nýjungina úr nautakjöti. Thorvald Smári Jóhannsson, hlaut sérstök verðlaun Kjötframleiðenda hf. fyrir Léttreykt hrossafile með hunangi, bestu vöruna unna úr hrossa- eða folaldakjöti og Jóhann Gunnar Guðmundsson, hlaut sérstök verðlaun Svínaræktarfélags Íslands fyrir Grísalifrarpaté með rifsberjahlaupi, bestu vöruna unna úr svínakjöti.
Þá vann Jóhann Gunnar Guðmundsson sveinakeppni kjötiðnaðarmanna og Ari Arnarson vann nemakeppni kjötiðnaðarnema..
Önnur úrslit urðu sem hér segir:
Nafn | Gull | Silfur | Brons |
Ingólfur Baldvinsson | Bökuð rjómalifrarkæfa með rifsberjahlaupi | Lifrarpylsa með kartöflum | |
Steinar Þórarinsson | | Kjötbúðingur | |
Jóhann Gunnar Guðmundsson | Grísalifrarpate með https://www.ss.isrifsberjahlaupi | Búrfells vínarpylsur Sparigrís (grafið grísafille) | |
Björgvin Bjarnason | Búrfells vínarpylsur | Grísabollur | |
Benedikt Benediktsson | Búrfells vínarphttps://www.ss.isylsur | ||
Örn Hauksson | Búrfells vínarpylsur | ||
Oddur Árnason | Ömmukæfa | Nautasnahttps://www.ss.iskkflögur | |
Viktor Steingrímsson | Nautarúllupylsa | Hunangs- og Sítrónugrafinn grhttps://www.ss.isísahryggvöðvi | |
Thorvald Smári Jóhannsson | Léttreykt hrossafile með hunangi, Hrossaálegg, Hrossasulta | Grafin lund, Smurkæfa | |
Jón Þorsteinsson | Búrfells vínarpylsur | Hrossagrjúpán, Grafinn gæðingur |
Hluti verðlaunagripanna
Um leið og við óskum kjötiðnaðarmönnunum okkar innilega til hamingju með glæstan árangur þökkum við þá miklu og fórnfúsu vinnu sem þeir lögðu á sig við undurbúning og þátttöku í keppninni.