Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi 21. mars 2014. Hér á pdf formi.
1. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,7% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 3,7% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 24.670.184,- eða 0,14 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 18.036.426,- Arðleysisdagur er 24. mars og arðréttindadagur er 26. mars. Greiðsludagur arðs er 15. apríl n.k.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins:
Tillaga að nýrri málsgrein neðst í 14. gr. samþykkta SS:
Stjórn félagsins er heimilt að ákveða úthlutun hluta tekjuafgangs sem viðbót á afurðaverð til félagsmanna enda standi nægar eftirstöðvar eftir að lokinni ráðstöfun tekjuafgangs og uppfyllt ákvæði samkvæmt samþykktum þessum og ákvörðunum aðalfundar um arðgreiðslur til félagsmanna í A-deild og eigenda hluta í B-deild.
Tillaga að nýrri 27. gr. samþykkta SS:
Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. Í aðalstjórn skal hlutfall hvors kyns fyrir sig ekki vera lægra en 40%.

Stjórn skal auglýsa með opinberum hætti eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar með lok framboðsfrests þremur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjör fer fram. Stjórn skal tilkynna aðalfundarfulltrúum með auglýsingu eða dreifibréfi (rafpósti) um hverjir eru frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar ekki síðar en tveimur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjörið fer fram. Á félagsfundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá, er ávallt heimilt að tilnefna fólk til stjórnarstarfa sem ekki er á auglýstum framboðslista allt þar til sjálf kosningin fer fram.
Allir aðalstjórnarmenn skulu kosnir á sama tíma og varastjórnarmenn með sama hætti eftir að kjöri aðalstjórnar er lokið. Hver fulltrúi á félagsfundi þar sem stjórnarkjör fer fram getur greitt einum til fimm frambjóðendum til stjórnar atkvæði sitt. Þeir stjórnarmenn sem flest atkvæði hljóta skulu réttkjörnir til stjórnarstarfa næsta kjörtímabil með þeirri undantekningu þó, að skili kosningin ekki réttum hlutföllum hvors kyns fyrir sig í aðalstjórn til samræmis við ákvæði 1. mgr., þá skulu atkvæðaflestu frambjóðendur til aðalstjórnar af gagnstæðu kyni sem hallar á við stjórnarkjörið, taka sæti í stjórn, einn eða tveir, eins og nauðsynlegt er til að lögmætu hlutfalli milli kynjanna verði náð, og þar með víkja þeim frambjóðendum til aðalstjórnar af gagnstæðu kyni sem þó hafa hlotið fleiri atkvæði við stjórnarkjörið.

Ef aðalmaður deyr, gengur úr félaginu eða víkur úr stjórninni á löglegan hátt, áður en kjörtíminn er liðinn, tekur sá varamaður sæti til fulls í hans stað sem flest atkvæði fékk í kjöri varastjórnar. Enginn félagsmaður getur skorast undan kosningu í stjórn félagsins, nema um jafnmörg ár og hann hefur næst áður verið í stjórninni og með samþykki hans má endurkjósa hann í stjórn.
Félagsstjórnin velur árlega formann og varaformann úr sínum flokki.
Ákvæði til bráðabirgða:
Ef tillaga þessi verður samþykkt, þá felur hún það í sér að bundinn er endir á kjörtímabil allra stjórnarmanna félagsins, bæði aðal- og varamanna, óháð hversu langt er eftir af kjörtímabili þeirra samkvæmt eldri ákvæðum samþykktanna. Kosin verður ný stjórn í kjölfar samþykktar tillögunnar, allir aðal- og varamenn, til eins árs.

3. Kosning stjórnar.
Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:
Aðalmenn:
Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449
Sigurlaug Jónsdóttir, varaformaður, kt. 170657-2099
Kristinn Jónsson, ritari, kt. 020460-3939
Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119
Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, kt. 140745-3329

Til vara:
Aðalsteinn Guðmundsson, kt. 010552-2069
Björn Harðarson, kt. 011059-3769
Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689
Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879
Ingibjörg Daníelsdóttir, kt. 081254-5329
Aðalsteinn Guðmundsson, kt. 010552-2069
Björn Harðarson, kt. 011059-3769
Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689
Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879
Ingibjörg Daníelsdóttir, kt. 081254-5329
4. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda.
Löggiltur endurskoðandi:
Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
Skoðunarmenn:
Aðalmenn:
Ásbjörn Sigurgeirsson, kt. 200752-2529
Bjarni Jónsson, kt. 300952-3649
Aðalmenn:
Ásbjörn Sigurgeirsson, kt. 200752-2529
Bjarni Jónsson, kt. 300952-3649
Varaskoðunarmenn:
Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509
Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299
Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509
Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299
5. Laun stjórnar og skoðunarmanna.
Stjórnarformaður kr. 1.133.000,- á ári.
Meðstjórnendur kr. 566.500,- á ári.
Skoðunarmenn kr. 149.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 149.000,- á ári.
Meðstjórnendur kr. 566.500,- á ári.
Skoðunarmenn kr. 149.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 149.000,- á ári.