Enn ein nýjungin í áleggsflokknum hefur litið dagsins ljós frá kjötmeisturum Sláturfélags Suðurlands. Pastramí er sérverkaður nautavöðvi sem kryddaður er að hætti Frakka og undirstrikar fjölbreytnina í áleggsúrvali SS. Bragðið er einstaklega gott og sneiðarnar bráðna í munni við fyrsta bita. Þær eru þunnar og líta sérlega vel út á diski. Pastramí er tilvalið í forréttinn og sniðugt er að rúlla sneiðunum upp og fylla með t.d. osti eða aspas. Þá er einnig hægt að setja sneiðarnar á snittubrauð eða hreinlega borða þær bara einar og sér.
Pastramí fæst í flestum matvöruverslunum landsins. Neytendur eru hvattir til þess að prófa þessa frábæru nýjung!
