2739141

Kjötmeistarar SS leggja sig fram við að velja einungis kjötmestu og fallegustu svínahryggina í SS hamborgarhrygg. SS hefur framleitt hamborgarhryggi í hartnær heila öld og byggir reyking þeirra á gamalli og faglegri hefð, sem tryggir jafna og góða reykingu.

Hamborgarhryggur m/beini

Vöruheiti : Hamborgarhryggur m/beini
Vörunúmer: 2739141
Meðalþyngd vöru: 2.2 kg

Innihald

Grísakjöt(93%, upprunaland Ísland), vatn, salt, bindiefni(E451, E450),

rotvarnarefni (E250), þráavarnarefni (E301).

Hamborgarhryggur eldunarleiðbeiningar:

Í potti: Setjið hrygginn í pott með köldu vatni, látið suðuna koma upp

og sjóðið rólega í 50 mín. Slökkvið undir pottinum og látið bíða í 30

mín.

Í ofni: Hitið ofn í 150°C, setjið hrygginn í ofnskúffu með u.þ.b. 1

lítra af heitu vatni. Eldið í 70 mín pr. kg. Ef soðið klárast bætið

við sjóðandi vatni í skúffuna. Sigtið soðið og geymið fyrir sósu.

Í steikarpotti í ofni: Hitið ofninn í 120°C. Setjið hrygginn í

steikarpott með u.þ.b. 1 lítra af vatni. Eldið í 65 mín pr. kg, í

lokuðum steikarpotti. Sigtið soðið og geymið fyrir sósu.

Gljái. 100 gr púðursykur, 2 msk Dijon sinnep, 1 msk hunang, 1/2 egg.

Öllu hrært saman. Þegar hryggurinn hefur verið eldaður er gott að

hjúpa hann með gljáanum og elda í ca 10-15 mín til viðbótar án loks,

við 180-190°C, eða þar til gljáinn er farinn að brúnast. Kjöthitamælir

á að sýna 68°C óháð eldunaraðferð. Látið hrygginn standa í 15 mín.

Fæðuóþol og ofnæmisvaldar

Næringargildi

Næringargildi 100g
Orka ( e. energy )

615 kJ 147 kkal

Fita ( e. fat )

8,3g

Kolvetni ( e. carbohydrates )

0 g

Prótein ( e. protein )

18 g

Salt ( e. salt )

1,8 g

Þarf af sykurt ( )

0,0g

Þar af mettuð fita ( e. thereof saturated )

6,4g

Out of stock

You may also like…