Stjórn SS hefur ákveðið að greiða bændum 2,15% uppbót á afurðaverð allra kjöttegunda fyrir árið 2011. Uppbótin verður greidd inn á bankareikninga bænda 12. mars næstkomandi.
Stefna SS er að greiða samkeppnishæft afurðaverð hverju sinni og góð afkoma liðins árs gerir þessa uppbót mögulega.