SS greiðir þann 22. febrúar n.k. 2,8% uppbót á afurðaverð vegna innleggs á árinu 2012, alls 47 mkr. en að viðbættum virðisaukaskatti 59 mkr. Uppbót á afurðaverð er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.
Stjórn SS samþykkti á stjórnarfundi hinn 19. febrúar 2013 að hafa sem viðmiðun að greiða samtals einn þriðja af afkomu móðurfélagsins af reglulegri starfsemi eftir skatta og fyrir reiknaða hlutdeild í afkomu dótturfélags og hlutdeildarfélaga til eigenda og félagsmanna.
Ef jafna þarf tap eða leggja framlög í lögbundna sjóði kemur það til frádráttar. Þessi þriðjungur skiptist í arð þ.m.t. arð vegna verðbóta til B deildar, vexti til A deildar og uppbót á afurðaverð liðins árs. Arður til B deildar og vextir á A deild greiðast skv. samþykktum félagsins en það sem á vantar að þriðjungi af afkomu sé náð verður greitt sem uppbót á afurðaverð. Með þessum hætti er ætlunin að tengja enn betur en verið hefur ávinning bænda sem skipta við félagið við afkomu er vel gengur.