1. Arður af B-deild stofnsjóðs og vextir af A-deild stofnsjóðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 14,5% arður af B-deild stofnsjóðs, alls 26 milljónir króna og reiknaðir 14,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 30 milljónir. Réttur til arðs miðast við lok aðalfundardags. Greiðsludagur arðs er 28. apríl n.k.
2. Tillaga um breytingu á 1. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að 1. mgr. 16. gr. samþykktanna verði svohljóðandi:
Félagssvæðið skiptist í deildir. Hvert sveitarfélag er ein deild. Þó getur aðalfundur leyft aðra deildarskipun. Deildir félagsins skulu halda ársfundi sína fyrir miðjan apríl ár hvert og skal þá kosinn deildarstjóri til eins árs í senn og annar til vara. Deildarstjóri er sjálfkjörinn fulltrúi deildar sinnar á fundum félagsins, án tillits til fjölda félagsmanna í deildinni miðað við, að hann komi fyrir fyrstu 10 virka innleggendur, 2 fulltrúar fyrir deild, sem hefur 11-20 virka innleggjendur, 3 fulltrúar fyrir þær, sem hafa 21-30 og svo framvegis. Virkur innleggjandi er félagsmaður sem hefur lagt inn afurðir til félagsins að andvirði meira en 70 þkr. á liðnu ári. Viðmiðunarupphæð breytist með neysluvísitölu frá desember 2005. Félagsmenn sem verða fyrir niðurskurði búfjár vegna sjúkdóma, skulu teljast virkir innleggjendur áfram þó þeir nái ekki tilsettri viðmiðunarupphæð í innleggi fyrstu 4 árin eftir niðurskurð.
3. Tillaga um sameiningu deilda.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að sameinaðar verði deildir og að heiti hinna sameinuðu deilda verði eftirfarandi:
Deildir sem verða sameinaðar: | Ný deildarheiti: |
|
|
Álftaversdeild og Meðallandsdeild | Álftavers- og Meðallandsdeild |
Fljótshlíðardeild og Hvolshreppsdeild | Fljótshlíðar- og Hvolshreppsdeild |
Holtadeild og Landmannadeild | Holta- og Landmannadeild |
Ásadeild og Djúpárdeild | Ása- og Djúpárdeild |
Stokkseyrardeild og Sandvíkurdeild | Árborgardeild |
Kjalarnes- og Mosfellsdeild og Kjósardeild | Kjósardeild |
Hvalfjarðarstrandardeild, Leirár- og Meladeild, Akranes- og Skilmannadeild | Hvalfjarðardeild |
Reykjavík, 14. mars 2006.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.